Láttu tæknina vinna með þér 2016-2017
Skólaárið 2016-2017 fékk Garðskóli styrk til að þróa kennsluhætti og fræðslu til nemenda, foreldra og kennara um lesblindu og þau upplýsingatækniverkfæri sem gætu gagnast í námi til að jafna stöðu lesblindra nemenda í skólastofunni. Markmið verkefnisins voru:
- að kynna fyrir kennurum, nemendum og foreldrum hvernig nýta megi tæknibúnað s.s. tölvur, síma og önnur snjalltæki í þágu nemenda með lestrarerfiðleika, þ.e. ala notendur upp til ábyrgðar.
-kenna nemendum með lesblindu að nýta sér talgervla til að lágmarka áhrif lesblindu á nám.
-að þróa og prófa verkefnagerð með kennurum þannig að uppsetningin henti fyrir talgervla.
-fá kennara í samstarf með að bjóða upp á hljóðskrár í prófum svo lesblindir nemendur sitji við sama borð og aðrir nemendur.
Helsti afrakstur verkefnisins má finna hér fyrir neðan en einnig má skoða lokaskýrslu verkefnisins:
Samtöl við nemendur og foreldra
Kennsluráðgjafi bauð upp á samtöl við nemendur með lesblindugreiningu og foreldra þeirra um þá þjónustu sem boðið er upp á í Garðaskóla og verkfæri sem hugsanlega gætu nýst þeim í námi. Samtölin tóku oftast um klukkustund og fundargerð ásamt tenglum á verkfærin var send foreldrum, umsjónarkennara og deildarstjóra námsvers. Tékklisti var nýttur í viðtölunum og sífellt í þróun. Dæmi um hljóðskrár og uppsetning spurninga á mismunandi prófum var einnig kynnt.
Fræðsla til kennara um uppsetningu prófa og hljóðskráa
Verkefnastjórar kynntu sömu verkfæri fyrir kennurum og rætt var um við nemendur og foreldra. Leiðbeiningar í tengslum við uppsetningu prófa fyrir talgervil voru útbúnar.
Viðhorfskönnun til nemenda með lesblindu
Verkefnastjórar lögðu fyrir viðhorfskönnun um notkun mp3 spilaranna í prófum.