Infographics getur vegið skemmtilega upp á móti ritgerðum og annarri textavinnu þar sem þetta er öðruvísi leið til að miðla frá sér efni og upplýsingum. Fyrir marga getur það að búa til myndrenninga verið mjög snúið en rannsóknir sýna það að "endurorða" upplýsingar úr texta yfir á annað form getur haft mikil áhrif á minni og yfirfærslu.
Kennslumyndbönd
Aðgengilegt í öllum PC tölvum
Excel
Excel forritið er flestum kunnugt en það er hentugt til að safna saman og vinna með tölfræðiupplýsingar sem svo er hægt að birta t.d. í margmiðlunarkynningum og textaskjölum
Kennslumyndbönd
Aðgengilegt á öllum nettengdum tölvum og iPad
Google Töflureiknir (Sheets)
Töflureiknirinn frá Google er hliðstætt forrit við Excel forritið, en þó með mun færri möguleika. Töflureikninn má finna í gegnum Google Drive og er hægt að nýta skjölin til að deila upplýsingum og vinna með öðrum.
Töflureiknirinn er veflæg lausn en fæst einnig sem smáforrit fyrir iPad, iPhone og Android snjalltæki.
Aðgengilegt í öllum iPad tölvum og Apple borðtölvum í Myndmennt og Tónmennt.
Numbers
Numbers er svar Apple við Excel töflureikninum. Eins og með önnur grunnforrit frá Apple fæst það bæði sem smáforrit fyrir iPad og iPhone og iOS stýrikerfið í borð- og fartölvum.