Hljóðbókasafn ÍslandsHljóðbóksafn Íslands heldur úti HBS smáforritinu fyrir Android snjalltæki. Notendur forritsins geta streymt og/eða hlaðið hljóðbókum inn á tækið sitt.
Einungis þeir sem hafa vottaða greiningu upp á að geta ekki nýtt sér prentað letur geta fengið aðgang að hljóðbókum HBS. |
Moon+ Reader PROMoon+ Reader PRO rafbókaskápurinn heldur utan um flestar tegundir rafrænna skjala og bóka (eins og rafbóka af vef MMS). Vinnur vel með talgervilsröddunum Dóru og Karli (sjá fyrir neðan).
Hægt er að fá ókeypis útgáfu af Moon+ Reader með takmarkaða virkni og auglýsingum. |
Talgervilsraddirnar Dóra/KarlAndroid snjalltæki bjóða upp á uppsetningu íslensku talgervilsraddanna Dóru og Karls (auk erlendra radda) í gegnum Google Play. Smáforritið er ókeypis.
Hér má heyra dæmi um prófspurningar sem lesnar eru upp með talgervli og keyrðar út sem mp3 skrár. |
Open DyslexicOpen Dyslexic býður upp á að breyta textanum í tækinu í Open Dyslexic stafagerðina. Athugið að myndir breytast ekki. Til að þess að ná í stafagerðina fyrir Android snjalltæki er nauðsynlegt að hlaða henni niður á tölvu og færa yfir.
|
Google TranslateGoogle Translate bíður upp á marga möguleika á þýðingum, og í mörgum tilvikum talgervlum á mismunandi tungmálum.
Í Android appinu er hægt að skrifa og tala en einnig taka mynd af texta/beina myndavélinni að texta og láta forritið greina hann með svokallaðri OCR myndtækni sem gerir tækinu kleift að breyta myndinni í tölvutækt form og þýða/lesa textann. Með forritið uppsett í Android tækinu er einnig hægt að velja texta í hvaða smáforriti sem er og láta Google Translate þýða. |
SkrambiSkrambi er íslenskt yfirlestrarforrit sem hýst er á vefnum og opnast því í hvaða netvafra sem er. Forritið er unnið í samstarfi við Árnastofnun. Notendur geta límt inn texta eða skrifað beint á síðuna til að nýta sér villuleitina. Einnig er hægt að líma inn texta og láta Ivona talgervilinn lesa upphátt svo hægt sé að staðsetja villur.
Forritið er í þróun. |