Read AloudÓkeypis viðbót (e. extension) í Chrome vafranum sem býður upp á íslensku talgervlana Karl og Dóru. Nauðsynlegt að setja upp í tengslum við Google reikning notanda (skrá sig inn).
Hér má heyra dæmi um prófspurningar sem lesnar eru upp með talgervli og keyrðar út sem mp3 skrár. |
Open DyslexicÓkeypis viðbót í Chrome sem býður upp á að breyta textanum í vafranum í Open Dyslexic stafagerðina. Athugið að myndir breytast ekki.
Hér má heyra dæmi um prófspurningar sem lesnar eru upp með talgervli og keyrðar út sem mp3 skrár. |
Google TranslateGoogle Translate viðbótin (e. extension) í Chromevafranum bíður upp á einfaldar þýðingu á stökum orðum eða setningum. Notandinn einfaldlega velur eða tvísmellir á það sem að þýða á síðunni og fær þá upp Google Translate merkið.
Í gegnum hefðbundnu vefútgáfuna er möguleiki á að skrifa, tala og hlaða inn skjölum til þýðinga (á sniðinu .doc, .docx, .odf, .pdf, .ppt, .pptx, .ps, .rtf, .txt, .xls eða .xlsx) . |
SkrambiSkrambi er íslenskt yfirlestrarforrit sem hýst er á vefnum og opnast því í hvaða netvafra sem er. Forritið er unnið í samstarfi við Árnastofnun. Notendur geta límt inn texta eða skrifað beint á síðuna til að nýta sér villuleitina. Einnig er hægt að líma inn texta og láta Ivona talgervilinn lesa upphátt svo hægt sé að staðsetja villur.
Forritið er í þróun. |