Hljóðvinnsla
Hljóðefni á netinu er, eins og flest annað efni á netinu, oft bundið höfundarétti og því ólöglegt að hlaða því niður nema að greiða fyrir það og þá er það oftast einungis til einkanota, ekki til breytingar eða dreifingar.
Undanskilið er efni sem merkt er með Creative Commons leyfinu en með því leyfir höfundur/eigandi hverjum sem er að nýta efnið í sín eigin verk. Í flestum tilvikum er þó óskað eftir því að viðkomandi taki fram hvaðan efnið komi (sjá upplýsingar um heimildaskráningu ef óskað er eftir heimildaskrá). Hægt er að leita eftir efni sem er merkt með Creative Commons leyfinu.
Incompetech er dæmi um síðu þar sem hægt er að leita að hljóðskrárbútum til að nýta í eigin verk. Með hverri hljóðskrá má finna sambærilegan texta og hér fyrir neðan. Í þessu tilviki ætti feitletraði textinn að fylgja með verkinu.

Að breyta hljóðskrá |
Aðgengilegt á öllum nettengdum tölvum
|
Mörg hljóðskrárforrit bjóða upp á möguleika um breytingar frá einni skráartýpu yfir í aðra (converting). Einnig er hægt að nýta vefsíður sem þessa til að breyta en þær geta þó haft áhrif á hljóðgæði.
|
Voice Memos |