Menntaspjall er, samkvæmt fésbókarsíðu verkefnisins, "hluti af þeirri vegferð að einstaklingsmiða endurmenntun kennara og skólafólks." Verkefninu var hrundið af stað vorið 2014 og á heimasíðu Inga Hrannars Ómarssonar má finna samantekt frá öllum þeim menntaspjöllum sem hafa farið fram.
Spjallið fer fram á Twitter annan hvern sunnudag kl. 11, undir merkinu #menntaspjall og alltaf er gengið út frá ákveðnu þema. Oftast er gestastjórnandi og fyrirfram ákveðnar spurningar sem þátttakendur svara en einnig er mælt með að þátttakendur ræði sín á milli um einstaka þætti sem koma upp. Mjög einfalt er að taka þátt í rauntíma (hægt að hafa samband við Hildi ef þið lendið í vandræðum) en þeir sem vilja bara fylgjast með geta einnig gert það (enda hellings starfsþróun fólgin í þátttöku á hliðarlínunni. Eins og minnst hefur verið á hér að ofan má alltaf finns samatekt á umræðunni á heimasíðu Inga Hrannars. Gott er að nota vefsíðuna TweetDeck til að hafa betri yfirsýn þegar spjallið er í gangi. |