Verkefni í stafrænni borgaravitund
Þróunarsjóður grunnskóla Garðabæjar veitti Garðaskóla styrk skólaárið 2017-2018 til að vinna verkefni um stafræna borgaravitund með umsjónarkennurum 8. bekkjar. Markmið verkefnisins var að ræða öll þemu stafrænnar borgaravitundar með umsjónarkennurum, sem í kjölfarið myndu taka efnið fyrir með bekknum sínum.
Í sumum tilvikum var ákveðið að keyra verkefni í öllum árgöngum skólans og verða ný verkefni sett hér inn eins og þau eru keyrð með nemendum

Símalaus dagur. Ákveðið var að halda símalausan dag í 8. bekk. Bréf var sent heim til foreldra og nemendur hvattir til að sleppa símanum einn skóladag. Sumir geymdu hann í nemendaskápnum sínum en margir slepptu því að koma með hann í skólann. Fjallað var tilraunina í kvöldfréttum RÚV og á KrakkaRÚV . Í kjölfarið héldu sumir umsjónarkennarar áfram með tilraunina og reyndu fleiri símalausa daga. Einnig var mælt með því við foreldra að þeir leyfðu uppsetningu á forritum sem mældu notkun snjallsíma og einstakra forrita svo hægt væri að eiga umræðu um raunverulega snjallsímanotkun unglinga í skólanum. Foreldrar voru einnig hvattir til að setja forritið upp á sínum snjalltækjum og ræða notkunina heima fyrir. Umsjónarkennarar rannsökuðu nokkur forrit og mæltu helst með eftirfarandi:
Snjallar fyrirmyndir (tvær kennslustundir). Kaffihúsaspjall þar sem nemendur flytja sig á milli borða og ræða mismunandi málefni.
Persónuvernd á netinu (ein kennslustund). Listi yfir kveikjur, verkefni og tengla sem nýtast í umræðum með nemendur um persónuvernd þeirra á netinu. Nokkur verkefnin miða við að nemendur hafi eigið tæki til umráða svo þeir geti skoðað eigin notkun.
Myndbirtingar og auglýsingar á Instagram (ein kennslustund). Paraverkefni þar sem nemendur fara yfir færslur fræga fólksins og greina hugsanlegar markaðsástæður færslnanna og auglýsingar.
Viðhorfskönnun nemenda um samfélagsmiðla (ein kennslustund). Rafræn könnun í gegnum Google Forms sem nemendur svara um notkun sína á samfélagsmiðlum. Könnunin er nafnlaus en auðvelt er að skoða niðurstöður fyrir allan hópinn saman (tölfræði og opnar spurningar) og því mikilvægt að kynna það fyrir nemendum. Auðvelt er að senda sömu könnun á foreldra/kennara nemenda og bera saman svörin.
Upplýsingatæknibúðir um samfélagsmiðla (fjórar kennslustundir, auk kynningar fyrir foreldra hvers bekkjar). Nemendur völdu sig í hópa innan umsjónarbekkjanna og fengu úthlutaðan samfélagsmiðil (dregið). Hver hópur varð sérfræðingur í sínum miðli miðað við verklýsingu en svo var púslaðferðin notuð til að dreifa þekkingu til annarra nemenda. Að lokum var foreldrum boðið til að hlusta á kynningarnar.
Myndin af mér (ein til fjórar kennslustundir). Nemendur horfðu á allar klippurnar úr stuttmyndinni Myndin af mér sem frumsýnd var í bútum vorið 2018. Í kjölfar hvers hluta voru umræður, meðal annars út frá þeim upplýsingum sem má nálgast á heimasíðu myndarinnar. Hægt er að horfa á myndina í fjórum hlutum eða heilu lagi (u.þ.b. hálftími að lengd).

- Snjallar fyrirmyndir - Lýsing á framkvæmd
- Snjallar fyrirmyndir - Kynning til nemenda
- Snjallar fyrirmyndir - Hópstjórablöð
Persónuvernd á netinu (ein kennslustund). Listi yfir kveikjur, verkefni og tengla sem nýtast í umræðum með nemendur um persónuvernd þeirra á netinu. Nokkur verkefnin miða við að nemendur hafi eigið tæki til umráða svo þeir geti skoðað eigin notkun.
Myndbirtingar og auglýsingar á Instagram (ein kennslustund). Paraverkefni þar sem nemendur fara yfir færslur fræga fólksins og greina hugsanlegar markaðsástæður færslnanna og auglýsingar.
Viðhorfskönnun nemenda um samfélagsmiðla (ein kennslustund). Rafræn könnun í gegnum Google Forms sem nemendur svara um notkun sína á samfélagsmiðlum. Könnunin er nafnlaus en auðvelt er að skoða niðurstöður fyrir allan hópinn saman (tölfræði og opnar spurningar) og því mikilvægt að kynna það fyrir nemendum. Auðvelt er að senda sömu könnun á foreldra/kennara nemenda og bera saman svörin.
Upplýsingatæknibúðir um samfélagsmiðla (fjórar kennslustundir, auk kynningar fyrir foreldra hvers bekkjar). Nemendur völdu sig í hópa innan umsjónarbekkjanna og fengu úthlutaðan samfélagsmiðil (dregið). Hver hópur varð sérfræðingur í sínum miðli miðað við verklýsingu en svo var púslaðferðin notuð til að dreifa þekkingu til annarra nemenda. Að lokum var foreldrum boðið til að hlusta á kynningarnar.
- Upplýsingatæknibúðir - kynning til nemenda
- Upplýsingatæknibúðir - verklýsing
- Upplýsingatæknibúðir - sóknarkvarðar fyrir sjálfsmat og jafningjamat