Síðasta þema valfagsins Hönnun og tækni skólaárið 2017-2018 var tækjaforritun. Sphero SPRK+ kúlurnar urðu fyrir valinu og fengu nemendur tækifæri til að prófa sig áfram við stýringu þeirra, bæði með frjálsri aðferð og Blockly forritun. Í síðasta tímanum fyrir sumarfrí var svo sett upp þrautabraut þar sem keppt var um besta tímann.
Þó að Sphero kúlurnar séu skemmtilegar voru nemendur sammála um að virkni þeirra væri frekar ónákvæm. Mið hverrar kúlur spilar örugglega þar inn í en einnig voru uppi hugmyndir um að hleðslan, sem dugar mest í 40 mínútur hverju sinni, hefði áhrif á t.d. hraða ef miðað er við byrjun tímans og lok hans. Vonandi er þetta eitthvað sem verður lagað með frekari þróun.
0 Comments
|
Hver og hvað?Hildur Rudolfsdóttir, kennsluráðgjafi í tölvu- og upplýsingatækni skrifar hér um starf í Hönnunarsmiðju Garðaskóla, Þristinum, sem tekin var í notkun haustið 2017 Safnið
May 2018
Flokkar |