Lengi vel hefur verið vitað um þau jákvæðu áhrif sem val nemenda á verkefnum getur haft á áhuga þeirra á námi sínu.
Með það að leiðarljósi fengu nemendur í Hönnun og tækni að velja hvaða þemu yrðu tekin fyrir skólaárið 2017-2018. Valið stóð á milli 10 þema og fengu nemendur tækifæri til að kynna sér þau forrit/aðföng sem gætu átt við hvert og eitt. Þar að auki gátu þeir bætt við þema/forritum við þann lista sem kennari setti fram. Þó að öll þemun hafi fengið atkvæði urðu þessi efst á lista:
Hvert þema er áætlað að taki um 3-4 vikur. Nemendur munu velja sér efni/verkefni til að vinna innan hvers þema og skila sjálfsmati og stuttri umsögn um viðkomandi tækni til opinberar birtingar á vef Hönnunarsmiðjunnar. Auk þess mun hver nemendi velja sér efni eftir áhugasviði og kynna á skólaárinu fyrir öðrum nemendum í hópnum.
0 Comments
Valfagið Hönnun og tækni er hluti af þróunarverkefni sem styrkt er af Þróunarsjóði grunnskóla Garðabæjar. Verkefnið felur í sér kynjaskipta hópa sem munu einu sinni í viku kanna mismunandi hliðar hönnunar og tækni skólaárið 2017-2018. Fyrsti tími valfagsins fólst í að kynna hugmyndina og skipulagið en í öðrum tíma var rætt um hönnun í víðum skilningi; hvað er hönnum og hvað gerir hana góða/slæma. Í tengslum við það voru sýnd raunveruleg dæmi þar sem hönnun var ekki að skila sér eða framkvæmdarhliðin var ekki að uppfylla sýn hönnuðar. Eftir umræðurnar var tekist á við lítið hönnunarverkefni. Nemendum var skipt upp í hópa og þeir fengu 15 mínútur til að byggja hæsta turninn úr sogrörum og límbandi. Leyfilegt var að krumpa og klippa rörin eftir þörfum og líma mátti rörin við gólfið (en ekki nýta önnur húsgögn til að styðjast við). |
Hver og hvað?Hildur Rudolfsdóttir, kennsluráðgjafi í tölvu- og upplýsingatækni skrifar hér um starf í Hönnunarsmiðju Garðaskóla, Þristinum, sem tekin var í notkun haustið 2017 Safnið
May 2018
Flokkar |