Lið Garðaskóla náði þeim frábæra árangri um helgina að vinna tækni- og hönnunarkeppnina First Lego League sem haldin var í Háskólabíó. Næst liggur leiðin til Osló í byrjun desember þar sem keppt verður við aðrar Norðurlandaþjóðir í forritun þjarka (róbóta) sem byggir á hönnun- og verkfræðihugsun. Auk þess munu þeir stilla upp kynningarbás á ensku um rannsóknarefnið vatn sem er þema keppninnar í ár. Nemendurnir eru hluti af valfaginu First Lego sem hefur einmitt aðsetur sitt í Hönnunarsmiðjunni. Tveir hópar eru keyrðir skólaárið 2017-2018, annar fyrir 9. bekk og hinn 10. bekk sem einblínir á keppnina. Keppnin skiptist í fjóra meginhluta sem allir teljast til stiga: Forritun, rannsóknarverkefni, liðsheild og vélmennakeppni. Auk þess að bera sigur í heildarstigakeppninni vann lið Garðaskóla, FILIPPO BERIO, einnig sérstök verðlaun fyrir hönnun og forritun vélmennis. Um 200 keppendur frá 18 grunnskólum á Íslandi skráðu sig til leiks og stóð keppnin allan daginn. Markmiðið með keppninni er að efla færni og vekja áhuga ungs fólks á tækni og vísindum með því að leggja fyrir þau spennandi verkefni sem örva nýsköpun, byggja upp sjálfstraust og efla samskipta- og skipulagshæfni. Háskóli Íslands hefur staðið fyrir keppninni í rúman áratug en aðrir helstu styrktaraðilar eru Nýherji og Krumma.
0 Comments
Þessi vika markaði lok fyrsta þemaverkefnis beggja hópa í Hönnun og tækni valfaginu. Nemendur eru þar búnir að vera að vinna í 3D hönnun og prentun og hafa staðið sig með prýði. Mörg vandamál hafa komið upp og mikil ígrundun farið í suma hluti til að fullkomna verkið. Flestir nemendur völdu að vinna í TinkerCad forritinu, sem er ókeypis veflausn á vegum Autodesk. TinkerCad hefur margsinnis sannað sig sem einfalt og aðgengilegt forrit fyrir þá sem eru að fikra sig áfram í 3D hönnun í fyrsta skipti. Við fyrstu innskráningu lendir notandinn inn á "námskeiði" þar sem helstu skipanir eru kynntar. Það voru einhverjar gloppur í virkninni en flestir komust í gegnum það án vandræða. Nokkrir völdu að vinna þrívíddina í SketchUp forritinu sem býður upp á marga möguleika í ýmiskonar hönnun, hvort sem er í gegnum veflausnina eða tölvuforritið sjálft. Til að undirbúa skrána úr SketchUp yfir í MakerBot Desktop forritið þurftum við að bæta viðbótinni SketchUp STL inn í gegnum Extension Warehouse sem finna má í SketchUp. Það sem betur fer flæktist ekki fyrir okkur, þó að nemendaaðgangar séu settir þannig upp að þeir geti ekki breytt neinu né hlaðið niður. Eftir að hafa valið sér forrit völdu nemendur sér verkefni af lista sem kennarinn gaf upp; símastandur, skál og snagi í nemendaskáp. Nokkrir nemendur báðu þó um að vinna í öðrum verkefnum og var það auðvitað samþykkt. Einhverjir nemendur höfðu unnið áður í 3D en flestir töldu sig hafa lært eitthvað nýtt á þessum vikum. Fyrir kennarann var erfiðast að leyfa þeim að spreyta sig og prófa sig áfram, en einnig var áhugavert að sjá nemendur aðstoða hvorn annan þegar einhver lenti í vandræðu, Hér til hliðar má sjá myndir af Instagram reikningi Hönnunarsmiðjunnar en fyrir neðan má einnig sjá fleiri myndir úr þessari vinnnu. |
Hver og hvað?Hildur Rudolfsdóttir, kennsluráðgjafi í tölvu- og upplýsingatækni skrifar hér um starf í Hönnunarsmiðju Garðaskóla, Þristinum, sem tekin var í notkun haustið 2017 Safnið
May 2018
Flokkar |