Valfagið Hönnun og tækni er hluti af þróunarverkefni sem styrkt er af Þróunarsjóði grunnskóla Garðabæjar. Verkefnið felur í sér kynjaskipta hópa sem munu einu sinni í viku kanna mismunandi hliðar hönnunar og tækni skólaárið 2017-2018. Fyrsti tími valfagsins fólst í að kynna hugmyndina og skipulagið en í öðrum tíma var rætt um hönnun í víðum skilningi; hvað er hönnum og hvað gerir hana góða/slæma. Í tengslum við það voru sýnd raunveruleg dæmi þar sem hönnun var ekki að skila sér eða framkvæmdarhliðin var ekki að uppfylla sýn hönnuðar. Eftir umræðurnar var tekist á við lítið hönnunarverkefni. Nemendum var skipt upp í hópa og þeir fengu 15 mínútur til að byggja hæsta turninn úr sogrörum og límbandi. Leyfilegt var að krumpa og klippa rörin eftir þörfum og líma mátti rörin við gólfið (en ekki nýta önnur húsgögn til að styðjast við).
0 Comments
Leave a Reply. |
Hver og hvað?Hildur Rudolfsdóttir, kennsluráðgjafi í tölvu- og upplýsingatækni skrifar hér um starf í Hönnunarsmiðju Garðaskóla, Þristinum, sem tekin var í notkun haustið 2017 Safnið
May 2018
Flokkar |